Hönnun og uppsetning:
ATH.: Við hvetjum þig til að hanna og setja upp auglýsinguna þína í mismunandi stafagerð og litum, ekki bara skrifa hana. Sjá dæmi um hannaðar og uppsettar auglýsingar hér og hér, en allir möguleikar eru opnir fyrir skapandi fólk!
Fleiri ráð til að hámarka virkni auglýsinga:
-
Láttu fyrirsögn auglýsingarinnar vera stutta en hnitmiðaða.
-
Auglýsingar með mynd eða myndum fá mun meiri athygli.
-
Mikilvægt er að skrifuð sé rétt íslenska í texta auglýsingar, t.d. leita örugglega færri að “fellihísi” en “fellihýsi”.
-
Reyndu að setja inn í auglýsingatextann lykilorð sem passa við auglýsinguna þína, þ.e. orð sem kaupendur væru líklegir til að nota við leit að því sem þú ert að auglýsa.
Vantar yfir- eða undirflokk?
Ef þú telur að það vanti yfir- eða undirflokk í auglýsingunum á Hestafrettir.is, vinsamlega láttu okkur vita með því að smella hér og við kippum því í liðinn.
Grundvallarreglur:
-
Auglýsingar sem innihalda ljótt orðbragð eða klámfengið efni og tengla verða ekki birtar á Hestafrettir.is.
-
Stjórnendum Hestafrettir.is er heimilt að eyða út auglýsingum sem brjóta gegn almennum siðareglum.
-
Stjórnendum Hestafrettir.is er heimilt að útiloka notendur sem brjóta ítrekað gegn almennum siðareglum í auglýsingum sínum eða notkun á vefnum.
-
Stjórnendum Hestafrettir.is er heimilt að laga augljósar stafsetninga- og málfræðivillur í fyrirsögn og/eða texta auglýsinga sem almennir notendur birta á vefnum.
-
Bannað er að auglýsa í flokkum sem eiga ekkert skylt við innihald auglýsingarinnar.Vinsamlega forðist einnig að nota sömu auglýsinguna oftar en einu sinni í hverjum flokki.
-
Notendum er skylt að lesa og samþykkja notkunarreglur Hestafrettir.is áður en vefaðgangur er stofnaður.
Ýmsar spurningar og svör við þeim:
1. Ég vil setja inn auglýsingu. Hvar byrja ég? Aftur í topp
Áður en þú auglýsir í fyrsta skipti þarftu að stofna vefreikning. Netfangið (e-mail) sem þú notar þarf síðan að staðfesta. Það er gert með því að senda þér tölvupóst á viðkomandi netfang sem inniheldur viðeigandi staðfestingarkóða. Þennan kóða þarftu að setja inn í þar til gerðan reit eða smella á sérstakan staðfestingartengil í póstinum. Þegar netfangið þitt hefur verið staðfest getur þú byrjað að auglýsa. Þegar þú skráir þig inn muntu sjá nafnið þitt uppi í vinstra horninu.
2. Ég hef búið til vefreikning og á að setja inn staðfestingarkóða, en hef ekki fengið tölvupóst með kóðanum. Aftur í topp
Vinsamlega athugaðu hvort þú hafir sett in rétt og gilt netfang. Reyndu að skrá þig inn á ný og ef tölvupóstfangi þínu er hafnað skaltu smella á “Uppfæra reikning”. Þá verður staðfestingakóðinn sendur til þín á ný á það netfang sem þú tilgreindir í það skiptið. Athugaðu að kóðinn er aðeins sendur ef netfangið hefur breyst. Ef þú hefur frá upphafi notað rétt netfang geturðu skráð þig inn og smellt á “Endursenda staðf.kóða” á staðfestingarforminu.
3. Ég finn ekki þann auglýsingaflokk sem auglýsingin mín ætti að vera í. Aftur í topp
Ef þú finnur ekki viðeigandi auglýsingaflokk, og þú getur ekki notað “Ýmislegt”-flokkinn, vinsamlega láttu okkur vita og við búum til nýjan flokk til fyrir þig – svo framarlega sem beiðni þín er gild og hún gengur ekki í berhögg við stefnu okkar.
4. Ég setti auglýsinguna mína í rangan flokk. Get ég breytt um flokk? Aftur í topp
Nei, ekki beint, en þú getur einfaldlega eytt fyrri auglýsingunni og sett inn nýja (sjá svar #11).
5. Ég setti inn ranga mynd með auglýsingunni. Get ég breytt því? Aftur í topp
Já, þú getur breytt myndinni. Ef þú hefur ekki þegar birt auglýsinguna nægir að smella á “Fjarlægja” fyrir neðan myndina í síðasta skrefi og síðan á “Setja inn mynd”. Ef þú hefur þegar birt auglýsinguna skaltu opna hana í fullri stærð og í “Status” svæðinu neðst skaltu smella á “Myndir”-tengilinn. Þá opnast gluggi þar sem þú getur breytt eða bætt við myndum við auglýsinguna.
6. Ég hef sett inn auglýsingu en hún birtist ekki? Aftur í topp
Til að koma í veg fyrir misnotkun þurfum við að fara yfir og samþykkja allar auglýsingar. Við gerum það oftast strax en áskiljum okkur 24 klukkustundir til að samþykkja auglýsinguna. Um leið og það er gert muntu fá staðfestingarpóst frá okkur.
7. Ég gleymdi aðgangsorðinu mínu. Hvernig get ég fengið það sent aftur? Aftur í topp
Ef þú gleymir aðgangsorðinu þínu geturðu smellt á “Gleymt aðgangsorð” á skráningarsíðunni, sett inn netfangið þitt og smellt á “Senda aðgangsorð”. Við munum þá senda þér tímabundið aðgangsorð sem þú notar til að skrá þig inn. Þegar inn er komið þarftu að smella á “Minn reikningur” og setja inn nýtt og ótímabundið aðgangsorð að eigin vali.
8. Get ég breytt netfangi mínu, aðgangsorði eða nafni? Aftur í topp
Þú getur breytt þessu öllu í “Profile” þegar þú ert skráð(ur) inn. Ef þú breytir hins vegar netfanginu þarftu að fara í gegnum sama staðfestingarferli og þú fórst í gegnum þegar þú skráðir þig upphaflega.
9. Verður netfangið mitt notað til að senda mér óumbeðinn auglýsingapóst (spam). Aftur í topp
Nei, netfangið þitt verður hvorki og ALDREI selt né leigt frá okkur, né notað á ólögmætan hátt eða til að senda út auglýsingapóst. Hins vegar gætirðu fengið póst frá OKKUR þegar við uppfærum vefinn, breytum stefnu okkar eða þurfum að senda þér mikilvægar upplýsingar varðandi vefreikninginn þinn.
10. Get ég framlengt birtingatíma áður en hann rennur út eða breytt auglýsingunni minni? Aftur í topp
Já, þú getur framlengt birtingartímann og breytt auglýsingunni að vild. Athugaðu samt að í sumum auglýsingaflokkum er fastur, óbreytanlegur birtingartími. Til að breyta innihaldi auglýsingar skaltu opna auglýsinguna í fullri stærð og smella á “Edit”, eða á “Edit” á listanum sem birtist eftir að þú smellir á “Mínar auglýsingar”.
11. Ég seldi það sem ég var að auglýsa. Get ég fjarlægt auglýsinguna? Aftur í topp
Já, þú getur eytt auglýsingu með því að smella á “Eyða”-takkann þegar þú ert að horfa á auglýsinguna í fullri stærð eða á listanum sem birtist eftir að þú smellir á “Mínar auglýsingar”. Þú verður að vera skráð(ur) inn í kerfið til að gera þessar breytingar. Þú getur einnig tekið auglýsingar tímabundið úr sambandi með því að nota “Fjarlægja”-tengilinn. Þá mun auglýsingin hverfa af síðunni en halda sér í gagnasafninu. Þú getur sína notað “Birta á ný”-tengilinn til að birta hana aftur. Þegar þú opnar auglýsinguna þína í fullri stærð getur þú séð stöðu auglýsinganna þinna á “Staða”-svæðinu sem birtist neðst. Þar eru tenglar til að m.a. eyða, fjarlægja, breyta, birta (o.s.frv.) auglýsingunum þínum.
12. Auglýsingin mín er útrunnin. Get ég birt hana aftur? Aftur í topp
Já, skráðu þig inn, smelltu á “Mínar auglýsingar” og síðan á “Endurbirta”-tengilinn.
13. Mig langar til að auglýsa á síðunni með auglýsingaborða (banner). Hvað geri ég? Aftur í topp
Til að setja inn banner þarftu að skrá þig á venjulegan hátt, staðfesta skráninguna og þegar inn er komið smellir þú á “Auglýsa”-tengilinn neðst. Fylgdu síðan leiðbeiningunum sem gefnar eru.
14. Ég er með auglýsingaborða (banner) á síðunni. Get ég séð daglega virkni hans (statistics)? Aftur í topp
Já, þegar þú ert skráð(ur) inn geturðu smellt á “Auglýsa”-tengilinn neðst og síðan á “See Rotator Statistics”. Þar geturðu séð fjölda birtinga og smella á bannerinn þinn og þann fjölda sem eftir er áður en auglýsingatími bannersins rennur út. 15. Ég sé ekki það sem ég vildi spyrja að hér. Get ég haft samband beint? Aftur í topp
Já, vinsamlega smelltu hér til að hafa samband við okkur.
|